Aðalfundur ÍTF (Íslensk toppfótbolta) var haldinn í dag. Þar var meðal annars einróma samþykkt breyting á samþykktum samtakanna þannig að öll félög í Inkasso-deildi geta átt aðild og þá að lágmarki til tveggja ára. Innan ÍTF geta því verið 26 félög að hámarki hverju sinni.
Haraldur Haraldsson, framkvæmdastjóri Víkings R., var endurkjörinn formaður samtakanna.
Jónas Gestur Jónasson, fyrrverandi formaður Víkings Ó, hætti í stjórn og tók Hulda Birna Baldursdóttir framkvæmdastjóri ÍA sæti hans í stjórn. Auk þeirra eru Árni Hermannsson (Fjölnir), Haraldur Pálsson (ÍBV) og Jónas Kristinsson (KR) í stjórninni.
Alls satu fulltrúar 18 félaga úr tveimur efstu deildum aðalfundinn í dag.
Aðalfundi ÍTF lokið. Stóra fréttin er sú að að opnað var á inngöngu Inkasso liðanna. Átta þeirra sátu fundinn. Sú grasrótin. #fotboltinet #pepsi365 #inkasso #ítf
— Haraldur Haraldsson (@HarHaralds) November 23, 2017
Athugasemdir