Kínverska kvennalandsliðið tapaði 1-0 fyrir Japan í jöfnum leik í Austur-Asíumótinu í fótbolta í dag.
Þetta var fjórði leikur Kína eftir að Sigurður Ragnar Eyjólfsson tók við þjálfun liðsins en allir leikirnir hafa tapast.
Þetta var fjórði leikur Kína eftir að Sigurður Ragnar Eyjólfsson tók við þjálfun liðsins en allir leikirnir hafa tapast.
Halldór Björnsson og Dean Martin eru aðstoðarmenn Sigga Ragga hjá kínverska landsliðinu.
Kína tapaði gegn Norður-Kóreu á föstudaginn í sama móti en liðið leikur gegn Suður-Kóreu á föstudagsmorgun.
Athugasemdir