Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 24. mars 2018 00:03
Elvar Geir Magnússon
Santa Clara
Myndaveisla: Sjáðu frá trylltri bílastæðahátíð Mexíkóa
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Um 65 þúsund áhorfendur verða á leik Mexíkó og Íslands sem hefst klukkan 2 í nótt að íslenskum tíma.

Löngu fyrir leik voru fjölmargir stuðningsmenn byrjaðir að hita upp á risastóru bílaplaninu fyrir utan völlinn.

Fjölmargir voru að grilla, spila á hljóðfæri, drekka áfenga drykki, dansa, syngja og skemmta sér.

Andrúmsloftið var mjög vinalegt og var undirrituðum boðnar veitingar í föstu og fljótandi formi um allt planið.

Sjá einnig:
Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu frá leiknum

Hér að neðan má sjá myndaveislu frá Hafliða Breiðfjörð sem skemmti sér konunglega.
Athugasemdir
banner
banner
banner