Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 24. mars 2018 18:30
Gunnar Logi Gylfason
Lengjubikarinn B-deild: Kári með stórsigur
Marinó Hilmar, hér lengst til hægri skoraði tvö mörk fyrir Káramenn
Marinó Hilmar, hér lengst til hægri skoraði tvö mörk fyrir Káramenn
Mynd: ÍA
Almar Daði var með tvennu fyrir Leikni Fáskrúðsfirði
Almar Daði var með tvennu fyrir Leikni Fáskrúðsfirði
Mynd: Raggi Óla
Öllum leikjum dagsins í B-deild Lengjubikarsins er nú lokið.

Í riðli 1 vann Kári stórsigur á Berserkjum á Víkingsvelli en liðin enduðu á sitthvorum enda 3.deildarinnar síðastliðið sumar, Kári á toppnum og Berserkir á botninum, en liðin eru í sömu stöðu í riðlinum nú.

Sindri frá Höfn í Hornafirði og Vesturbæingarnir í KV mættust á Selfossi og skipust á jafnan hlut, 1-1. Þetta var fyrsta stig Sindramanna í mótinu.

Tveir leikir fóru fram í riðli 4. Leiknir Fáskrúðsfirði og Völsungur mættust í Fjarðabyggðahöllinni. Völsungur komst í 0-2 en heimamenn jöfnuðu. Stuttu eftir það misstu gestirnir mann útaf með rautt spjald en það kom ekki að sök þar sem þeir skoruðu sigurmarkið í lokin og unnu 2-3 sigur.

Þá vann Einherji 0-1 sigur á Hetti á Fellavelli á Egilsstöðum þar sem varamaðurinn Númi Kárason skoraði eina mark leiksins undir lok leiks.

Lengjubikarinn B-deild:

Riðill 1:
Berserkir 1-5 Kári
0-1 Marinó Hilmar Ásgeirsson (7')
0-2 Sindri Snæfells Kristinsson (19')
0-3 Andri Júlíusson (28')
1-3 Jón Steinar Ágústsson (39')
1-4 Marinó Hilmar Ásgeirsson (59')
1-5 Andri Júlíusson (90')

Riðill 2:
Sindri 1-1 KV
1-0 Tómas Leó Ásgeirsson (12')
1-1 Jón Kári Ívarsson (víti) (27')

Riðill 4:
Leiknir F. 2-3 Völsungur
0-1 Bjarki Baldvinsson (41')
0-2 Guðmundur Óli Steingrímsson (70')
1-2 Almar Daði Jónsson (75')
2-2 Almar Daði Jónsson (85')
2-3 Freyþór Hrafn Harðarson (90')
Rautt spjald: Aðalsteinn Jóhann Friðriksson, Völsungur (86')

Höttur 0-1 Einherji
0-1 Númi Kárason (90')
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner