Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 23. apríl 2018 12:06
Magnús Már Einarsson
Í beinni - Dregið í 32-liða úrslit Mjólkurbikarsins
Horfðu í beinni hér að neðan
Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson
Dregið verður í 32-liða úrslit í Mjólkurbikar karla í hádeginu í dag. Hægt verður að fylgjast með drættinum í beinni útsendingu á Facebook síðu Fótbolta.net sem og beinni textalýsingu á Twitter síðu Fótbolta.net.

Liðin í Pepsi-deildinni koma inn í 32-liða úrslitunum en leikirnir fara fram strax í næstu viku.

Liðin í pottinum

Pepsi-deildin Breiðablik, FH, Fjölnir, Fylkir, Grindavík, ÍBV, KA, Keflavík, KR, Stjarnan, Valur, Víkingur R.

Inkasso-deildin Fram, Haukar, HK, ÍA , Leiknir R., Njarðvík, Magni, Selfoss, Víkingur Ó., Þróttur R.

2. deild Afturelding, Höttur, Kári, Víðir

3. deild Einherji

4. deild Hamar, Reynir S.

Lið sem mætast í 2. umferðinni í kvöld
Þór - Dalvík/Reynir
ÍR - Augnablik
Völsungur - Tindastóll


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner