Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 01. mars 2015 20:00
Alexander Freyr Tamimi
Þjálfari Roma: Guð er að refsa mér
Rudi Garcia hefur átt vont ár 2015.
Rudi Garcia hefur átt vont ár 2015.
Mynd: Getty Images
Rudi Garcia, þjálfari Roma, segir að Guð sé að refsa honum fyrir að segja að liðið gæti orðið ítalskur meistari.

Garcia vill ólmur binda enda á einokun Juventus í ítalska boltanum, en Roma byrjaði tímabilið frábærlega og var í bullandi baráttu um titilinn. Hins vegar hefur árið 2015 verið mjög vont fyrir Roma, sem er nú níu stigum frá Juventus fyrir leik liðanna á mánudag.

,,Guð er að refsa mér fyrir að segja að við gætum unnið deildina," sagði Garcia við blaðamenn.

,,Þetta voru ekki heimskuleg eða vanhugsuð orð, ég sagði þetta til að binda enda á neikvæðnina í kringum félagið. Við þurfum metnað og ég vil að hann sé til staðar."

Athugasemdir
banner
banner