Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mið 01. apríl 2015 17:00
Magnús Már Einarsson
Messi meiðir sig við að klæða sig í skóna
Messi hefur byrjað árið 2015 frábærlega.
Messi hefur byrjað árið 2015 frábærlega.
Mynd: Getty Images
Lionel Messi er tæpur fyrir leik Barcelona og Celta Vigo á sunnudag.

Messi var ekki með Argentínu í vináttuleik gegn Ekvador í gærkvöldi ekki frekar en gegn El Salvador um síðustu helgi.

Messi er að glíma við meiðsli á tá en hann finnur fyrir miklum sársauka við það eitt að klæða sig í skó.

Spænskir fjölmiðlar segja að Messi hafi meiðst gegn Manchester City 18. mars síðastliðinn en spilað þrátt fyrir sársuaka gegn Real Madrid fjórum dögum síðar.

Meiðslin hafa hins vegar lítið lagast og því er óvíst hvort Messi spili um helgina.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner