Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 01. apríl 2015 23:00
Ívan Guðjón Baldursson
Myndband: Fabregas rauk úr viðtali
Mynd: Getty Images
Cesc Fabregas sat allan tímann á bekknum þegar Spánn lagði Úkraínu af velli með einu marki gegn engu í undankeppni EM 2016.

Fabregas fékk þó að byrja í næsta leik sem var æfingaleikur gegn Hollandi. Spánverjar töpuðu leiknum 2-0 og var Cesc ekki ánægður í viðtali eftir leik.

,,Er einhver ástæða til að hafa trú á spænska landsliðinu eftir aðra hræðilega frammistöðu gegn Hollandi?" spurði fréttamaðurinn og var Fabregas augljóslega ekki tilbúinn til að takast á við spurninguna.

,,Ég veit ekki. Þú, sem spyrð spurningarinnar, svarar þessu eflaust neitandi en ég svara þessu játandi," svaraði Fabregas.

Fabregas kvaddi svo fréttamanninn án þess að taka við frekari spurningum og á leið sinni í burtu lét hann í ljós hversu ósáttur hann var með spurningarnar.

,,Hverskonar spurning! Hvernig dirfistu að spurja að þessu!"


Athugasemdir
banner
banner
banner