Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
   sun 01. maí 2016 19:00
Tómas Meyer
Davíð Þór: Flottir nýju jakkarnir hjá Kötturunum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Þetta var alvöru leikur. Það var smá taugaspenna hjá okkur fyrstu 15-20-25 mínúturnar," sagði Davíð Þór Viðarsson fyrirliði FH eftir 3-0 sigur á Þrótti í opnunarleik Pepsi-deildarinnar í dag.

Lestu um leikinn: Þróttur R. 0 -  3 FH

„Þetta var fyrsti leikur í móti og fiðringur í mönnum. Það er mismunandi hvernig það fer í menn. Það fór kannski ekki nógu vel í okkur en þetta endaði vel," sagði Davíð sem sjálfur lagði grunninn að fyrsta marki FH með frábærri sendingu inn fyrir á Steven Lennon.

„Já hún var góð. Ég hitti hann vel og Lenny er góður í þessu og þegar hann er með smá pláss fyrir aftan vörnina þarf sendingin ekkert að vera frábær. Hann er mjög fljótur og klókur og kláraði þetta frábærlega," sagði Davíð en eru FH-ingar of þungir á sér?

„Það leit kannski þannig út í dag. Ég veit það ekki, ég hef nú aldrei verið beint léttur á mér," sagði Davíð. „Við vorum ekki jafn léttir á okkur og þegar við erum upp á okkar besta en ég held að það sé svosem allt í lagi að þú sért ekki 100% í toppspilformi í byrjun móts og gott að vinna sig í það."

Nánar er rætt við Davíð Þór í sjónvarpinu að ofan en þar er hann meðal annars spurður út í stemmninguna í stúkunni og umgjörð Þróttar sem var til fyrirmyndar.

„Það var virkilega góð stemmning og fólk var mætt snemma á völlinn sem er alltaf gaman. Það er alltaf gaman að kötturunum og flottir jakkarnir þeirra. Mér fannst okkar menn í Mafíunni líka mjög öflugir og var Star Wars Stormtrooperinn ekki flottur?"
Athugasemdir
banner
banner