Jæja kæru lesendur, þá er komið að þessu. Pepsi-deild karla hefst í dag með fjórum leikjum, en tveir þeirra eru sýndir í beinni.
Dagurinn hefst með fjórum leikjum í Borgunarbikar karla, en svo er komið að stóru stundinni, þegar Íslandsmeistarar FH mæta nýliðum Þróttar R. í opnunarleik Pepsi-deild karla í ár.
FH-ingar eru taldir mjög sigurstranglegir í deildinni á meðan flestir búast við því að Þróttur fari niður. Leikurinn hefst klukkan 16:00, en klukkutíma síðar fer leikur ÍBV og ÍA af stað.
Svo seinna um kvöldið mætast Breiðablik og nýliðar Víkings Ó. og lokaleikur dagsins er svo leikur Vals og Fjölnis, en hann er sýndur í beinni.
Leikir dagsins:

Pepsi-deild karla
16:00 Þróttur R.-FH (Þróttarvöllur - Stöð 2 Sport)
17:00 ÍBV-ÍA (Hásteinsvöllur)
19:15 Breiðablik-Víkingur Ó. (Kópavogsvöllur)
20:00 Valur-Fjölnir (Valsvöllur - Stöð 2 Sport)
Borgunarbikar karla
12:00 Ísbjörninn-KB (Kórinn - Gervigras)
13:00 Álftanes-Reynir S. (Bessastaðavöllur)
13:00 Vatnaliljur-Hamar (Fagrilundur)
14:30 Vestri-KH (Torfnesvöllur)
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir