Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mán 01. september 2014 16:53
Elvar Geir Magnússon
Brian Montenegro til Leeds (Staðfest)
Brian Montenegro er kominn til Leeds.
Brian Montenegro er kominn til Leeds.
Mynd: Getty Images
Paragvæski sóknarmaðurinn Brian Montenegro er kominn til Leeds á árs lánssamningi frá Nacional Asuncion í heimalandi sínu.

Sem unglingur var hann í herbúðum West Ham í eitt ár en Lundúnafélagið ákvað að semja ekki við hann áfram og 2012 hélt hann aftur heim.

Montenegro er 21 árs en ef hann stendur sig hjá Leeds er möguleiki á að hann gangi alfarið til liðs við félagið.

Leeds er í 18. sæti ensku B-deildarinnar og er án stjóra eftir að David Hockaday var rekinn.
Athugasemdir
banner
banner