Watford hefur gengið frá kaupum á Obbi Oulare frá Club Brugge.
Watford borgar 6 milljónir punda fyrir þennan 19 ára belgíska sóknarmann.
Oulare hefur skorað átta mörk í 33 leikjum fyrir Club Brugge en hefur nú skrifað undir fimm ára samning við nýliða Watford.
Oulare er 196 sentimetrar að hæð og hefur leikið fyrir öll yngri landslið Belgíu.
Watford mun líklega tilkynna um fleiri félagaskipti á næstu mínútum en von er á allavega tveim nýjum leikmönnum í viðbót.
Athugasemdir