Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 02. júlí 2015 15:04
Arnar Daði Arnarsson
Byrjunarlið FH gegn SJK: Emil Páls beint í byrjunarliðið
Bjarni Þór byrjar á bekknum.
Bjarni Þór byrjar á bekknum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
FH mætir SJK í undankeppni Evrópudeildarinnar í Finnlandi í dag klukkan 16:00. Um er að ræða fyrri leik liðanna í einvíginu.

Emil Pálsson sem FH-ingar kölluðu til baka úr láni frá Fjölni í síðustu viku, fer beint í byrjunarliðið. Jón Ragnar Jónsson missir sætið sitt í kjölfarið og fer Brynjar Ásgeir Guðmundsson í hægri bakvörðinn í hans stað.

Athyglisvert að ekkert pláss er fyrir Bjarna Þór Viðarsson í byrjunarliðinu, en hann tók út leikbann í síðasta deildarleik FH.

Byrjunarlið FH:
Róbert Örn Óskarsson
Brynjar Ásgeir Guðmundsson
Guðmann Þórisson
Kassim Doumbia
Böðvar Böðvarsson
Pétur Viðarsson
Davíð Þór Viðarsson
Atli Guðnason
Þórarinn Ingi Valdimarsson
Emil Pálsson
Steven Lennon
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner