„Ef ég ætla að keyra á að verða markakóngur ætti ég að biðja Hörpu í kvennaliði Stjörnunnar hvort ég gæti fengið skóna hennar lánaða á laugardag #GoalMachine," skrifar Gary Martin, sóknarmaður KR, á Twitter.
Harpa Þorsteinsdóttir skoraði 27 mörk fyrir Stjörnuna í Pepsi-deild kvenna í sumar.
KR mætir Þór í lokaumferð Pepsi-deildarinnar á sunnudag. Leikurinn skiptir engu máli fyrir bæði lið en Gary Martin á þó möguleika á því að hreppa gullskóinn.
Markahæstur fyrir lokaumferðina er Jonathan Glenn í ÍBV með 12 mörk. Þar fyrir aftan eru Gary, Atli Guðnason í FH og Árni Vilhjálmsson í Breiðabliki með 10 mörk hver. Árni á þó ekki möguleika á gullskónum þar sem hann verður í leikbanni á laugardag.
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir