Áfram verður spilað með Nike bolta í Pepsi-deild karla í sumar líkt og í fyrra.
Íslenskur toppfótbolti er með samning við Nike um bolta út þetta tímabil.
Ásgeir Ásgeirsson, formaður hjá Íslenskum toppfótbolta, segir að sama tegund af Nike bolta verði notuð og í deildinni í fyrra en útlit hans er þó aðeins breytt. Um er að ræða sama bolta og er notaður í úrvalsdeildunum á Englandi, Spáni og Ítalíu.

FH-ingar léku með Adidas bolta í heimaleikjum sínum í fyrra en ekki Nike eins og önnur félög.
FH mun áfram leika með Adidas bolta í heimaleikjum sínum í sumar en þetta staðfesti Birgir Jóhannsson framkvæmdastjóri félagsins í samtali við Fótbolta.net í dag.
Í dag eru tveir mánuðir í að flautað verði til leiks í Pepsi-deildinni en fyrsta umferðin hefst 3. maí.
Athugasemdir