Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
banner
   sun 03. maí 2015 21:47
Arnar Daði Arnarsson
Vodafone-vellinum
Óli Jó: Þetta er kjaftshögg
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Við mættum ekki til leiks í þennan leik. Við fengum verulega á baukinn núna," sagði Ólafur Jóhannesson þjálfari Vals eftir 0-3 tap sinna manna gegn nýliðum Leiknis í fyrstu umferð Pepsi-deildar karla.

Lestu um leikinn: Valur 0 -  3 Leiknir R.

„Við byrjum leikinn illa og lentum í vandræðum eftir að hafa lent tveimur mörkum undir snemma leiks. Við vorum síðan ekki líklegir eftir það. Við reyndum eins og við gátum en það gekk ekki," sagði Ólafur en Valsmenn voru 2-0 undir eftir einungis 13 mínútna leik.

„Þetta er kjaftshögg og svekkjandi. Það er hinsvegar æfing á morgun og mætum tilbúnir í næsta leik. Það er eina sem við getum gert núna. Við þurfum að reyna vinna þann leik. Við þurfum ekki að breyta miklu þó að liðið spila illa einn leik. Við höfum spilað fína leiki í undirbúningnum."

Valsmenn voru langt í frá að vera beittir fram á við og voru aldrei líklegir að skora í leiknum.

„Ég held að við hefðum getað spilað fram að miðnætti og við hefðum ekki skorað sennilega," sagði Óli Jó að lokum.

Viðtalið í heild sinni er hægt að sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner