Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 04. desember 2016 13:10
Arnar Geir Halldórsson
Trúir því að Liverpool geti unnið deildina
Luis Garcia fyrir nokkrum árum
Luis Garcia fyrir nokkrum árum
Mynd: Getty Images
Spánverjinn Luis Garcia lék með Liverpool við góðan orðstír á árunum 2004-2007.

Hann starfar nú sem knattspyrnurýnir á beIN sjónvarpsstöðinni og fylgist grannt með gangi mála hjá sínu gamla félagi.

Garcia er sannfærður um Liverpool geti unnið ensku úrvalsdeildina í vetur en liðið er í þriðja sæti deildarinnar þegar þetta er skrifað.

„Ég sé ekki afhverju þeir ættu ekki að geta það. Þeir hafa spilað frábæran fótbolta í allan vetur og sérstaklega í síðustu leikjum. Leikmenn liðsins ná virkilega vel saman,"

„Þeir virðast vera sannfærðir um þann leikstíl sem Jurgen Klopp vill spila. Til að vinna deildina þurfa þeir stöðugleika og ég held að það sé ekki vandamál hjá þessu liði,"
segir Garcia.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner