Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fim 05. maí 2016 10:30
Jóhann Ingi Hafþórsson
Falcao kemst ekki í landsliðið lengur
Falcao hefur séð betri tíma.
Falcao hefur séð betri tíma.
Mynd: Getty Images
Kólombía hefur nefnt 40 manna hóp fyrir undurbúning liðsins fyrir Copa America.


Radamel Falcao, framherji Chelsea var ekki valinn af þjálfara liðsins, Jose Pekerman. Hinn þrítugi framherji hefur ekki spilað með landsliðinu síðan í 3-0 tapi gegn Úrúgvæ síðasta október.

Kólombíumaðurinn var eitt sinn talinn einn besti framherji Evrópu en eftir að hann var lánaður til Englands hefur ansi fátt gengið upp hjá honum.

Liðið byrjar á leik gegn Bandaríkjunum en Paragvæ og Kosta Ríka eru einnig í sama riðli.

Athugasemdir
banner
banner
banner