Arsenal hlustar á tilboð í Jesus - Tottenham reynir við Gallagher - Liverpool orðað við varnarmann Frankfurt
   mán 05. október 2015 07:00
Alexander Freyr Tamimi
Mynd: Rihönnu dauðleiddist á leik PSG og Marseille
Rihanna hefur mætt á nokkra fótboltaleiki.
Rihanna hefur mætt á nokkra fótboltaleiki.
Mynd: Twitter
Söngkonan Rihanna var óvæntur gestur á Parc des Princes leikvangnum í París þegar franska stórliðið Paris Saint-Germain tók á móti Marseille í "Le Classique" viðureign helgarinnar.

Þessi 27 ára gamla stórstjarna var stödd í frönsku höfuðborginni vegna tískuvikunnar í París en tók sér tíma til að horfa á Zlatan Ibrahimovic og félaga vinna 2-1 sigur gegn Marseille.

Miðað við meðfylgjandi mynd virðist Rihanna þó ekkert hafa verið upp með sér yfir fótboltanum sem spilaður var, en hún er talsverður aðdáandi íþróttarinnar og hefur mætt á nokkra stórleikina.



Athugasemdir
banner
banner