Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   lau 06. febrúar 2016 05:55
Óðinn Svan Óðinsson
England í dag - Manchester City mætir Leicester
Vardy og félagar spila við City
Vardy og félagar spila við City
Mynd: Getty Images
Átta leikir fara fram í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Veislan hefst strax klukkan 12:45 en þá tekur Manchester City á móti Leicester City og geta heimamenn hirt toppsætið af spútnik liði tímabilsins með sigri.

Liverpool tekur á móti Sunderland og Gylfi Þór Sigurðsson og félagar í Swansea taka á móti Crystal Palace á Liberty vellinum.

West Ham geta svo með sigri skotist upp fyrir Manchester United í lokaleik dagsins en þeir fara í heimsókn til Southampton.

Laugardagur:
12:45 Manchester City - Leicester (Stöð 2 Sport 2)
15:00 Liverpool - Sunderland (Stöð 2 Sport 2)
15:00 Tottenham - Watford (Stöð 2 Sport 4)
15:00 Swansea - Crystal Palace (Stöð 2 Sport 5)
15:00 Stoke - Everton (Stöð 2 Sport 6)
15:00 Newcastle - West Brom (Bravó)
15:00 Aston Villa - Norwich (Stöð 3)
17:30 Southampton - West Ham (Stöð 2 Sport 2)

Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner