Guus Hiddink þjálfari Chelsea sagði í viðtali við BBC að honum hefði boðist að taka við liði í kínversku deildinni áður en hann tók við þjálfun Chelsea.
Hinn 69 ára gamli Hiddink tók við liðinu til bráðabirgðar þegar Jose Mourinho var látinn taka poka sinn í desember síðastliðnum.
Hinn 69 ára gamli Hiddink tók við liðinu til bráðabirgðar þegar Jose Mourinho var látinn taka poka sinn í desember síðastliðnum.
Eins og allir vita hafa gæða leikmenn verið að fara í kínversku deildina að undanförnu en kínverjarnir hafa greinilega áhuga á fleiru en leikmönnum.
“Ég hafði möguleika á því að fara þangað áður en ég kom hingað,” sagði Hiddink sem enn hefur ekki tapað leik eftir að hann tók við stjórnartaumunum hjá Chelsea.
Athugasemdir