Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 06. maí 2015 23:30
Ívan Guðjón Baldursson
Myndband: Lagt upp og skorað með bakfallsspyrnu
Mynd: Getty Images
James Island Varsity Boys Soccer Team heitir eitt besta unglingaliðið frá Suður-Karólínu.

Liðið spilaði við Ashley Ridge á þriðjudaginn og vann 3-1 þar sem William Le skoraði stórbrotið mark.

James Island átti hornspyrnu sem varnarmönnum Ashley Ridge gekk illa að hreinsa og endaði það með því að Yasir Al-Kameshki tók bakfallsspyrnu til að koma boltanum aftur inn á vítateiginn.

Í miðjum vítateignum fékk William Le pláss til að athafna sig og afgreiddi boltann með annari bakfallsspyrnu, en sjón er sögu ríkari og því fylgir myndband með.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner