Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   mið 06. maí 2015 06:00
Daníel Freyr Jónsson
Oscar ekki með á Copa America - Brasilíski hópurinn klár
Oscar.
Oscar.
Mynd: Getty Images
Miðjumaðurinn Oscar mun ekki taka þátt í Suður-Ameríkumótinu (Copa America) með landsliði Brasilíu í sumar.

Þessi 23 ára gamli leikmaður dróg sig úr hópnum eftir að hafa meiðst á æfingu hjá liði sínu Chelsea, en þar varð hann enskur meistari í fyrsta sinn um helgina.

Landsliðsþjálfarinn Dunga staðfesti þetta við blaðamenn í dag, en brasilíski hópurinn var tilkynntur í dag.

Í honum erum stórstjörnur á borð við Neymar, David Luiz og Thiago Silva.

Landsliðshópur Brasilíu: Jefferson, Diego Alves, Marcelo Grohe, David Luiz, Marquinhos, Thiago Silva, Miranda, Danilo, Fabinho, Marcelo, Filipe Luiz, Luiz Gustavo, Fernandinho, Elias, Casemiro, Everton Ribeiro, Douglas Costa, Willian, Coutinho, Neymar, Diego Tardelli, Robinho, Roberto Firmino.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner