Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 07. febrúar 2016 15:21
Arnar Geir Halldórsson
England: Tvö mörk á tveim mínútum tryggðu Arsenal sigur
Boruc 0-1 Özil
Boruc 0-1 Özil
Mynd: Getty Images
Bournemouth 0 - 2 Arsenal
0-1 Mesut Ozil ('23 )
0-2 Alex Oxlade-Chamberlain ('24 )

Arsenal er komið í þriðja sæti ensku úrvalsdeildarinnar eftir sannfærandi sigur á nýliðum Bournemouth á Vitality leikvangnum í dag.

Gestirnir gerðu út um leikinn með tveim mörkum með mínútu millibili eftir rúmlega tuttugu mínútna leik.

Fyrra markið skoraði Mesut Özil eftir að Oliver Giroud skallaði boltann niður fyrir fætur Þjóðverjans sem kláraði færið af miklu öryggi. Nokkrum sekúndum síðar skoraði Alex Oxlade-Chamberlain svo laglegt mark eftir sendingu Aaron Ramsey.

Fleiri urðu mörkin ekki og Bournemouth því enn í 15.sæti deildarinnar, fimm stigum frá fallsæti.
Athugasemdir
banner
banner
banner