Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 07. febrúar 2016 09:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Oldham hefði getað keypt Vardy á 30.000 pund
Paul Dickov var mjög hrifinn af Vardy
Paul Dickov var mjög hrifinn af Vardy
Mynd: Getty Images
Jamie Vardy, sóknarmaður Leicester, hefði getað farið til Oldham á sínum tíma fyrir 30.000 pund, en frá þessu greinir Paul Dickov, fyrrum stjóri Oldham.

Vardy hefur farið á kostum á þessu tímabili og skorað 18 mörk í deildinni, en Dickov segist hafa verið nálægt því að kaupa Vardy frá Halifax sínum tíma.

Það var aðeins fjárhagslega hliðin sem kom í veg fyrir það að Vardy myndi fara til Oldham og þá hefðu hlutirnir getað farið á annan veg.

"Ég man eftir því að hafa horft á Jamie Vardy fyrir fimm árum, við fórum og skoðuðum hann þegar ég var stjóri Oldahm og hann var hjá Halifax," sagði Dickov.

"Við vorum reyndar ansi nálægt því að fá hann, en félagið átti ekki nógu mikinn pening til að klára kaupin á þeim tíma."
Athugasemdir
banner
banner
banner