Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 07. desember 2016 11:30
Magnús Már Einarsson
Myndband: Einfættur með mark mánaðarins í Skotlandi
Mynd: Getty Images
Tommy Mckay, einfættur stuðningsmaður Dundee United, hefur verið verðlaunaður fyrir að eiga mark nóvember mánaðar í skosku úrvalsdeildinni.

Hinn 32 ár gamli Mckay tók þátt í leik fyrir áhorfendur í hálfleik á heimaleik Dundee í mánuðinum.

Mckay fékk nauman tíma til að leika upp völlinn og skora framhjá markverði.

Hinn einfætti Mckay gerði sér lítið fyrir og vippaði yfir markvörðinn af löngu færi.

Yfir tvær milljónir manns hafa horft á markið á hinum ýmsu síðum undanfarna daga en hér að neðan má sjá markið.


Athugasemdir
banner
banner
banner