Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 08. október 2015 23:04
Ívan Guðjón Baldursson
Undankeppni HM: Úrúgvæ sigraði án Suarez og Cavani
Úrúgvæ og Paragvæ unnu bæði í kvöld.
Úrúgvæ og Paragvæ unnu bæði í kvöld.
Mynd: Getty Images
Hvorki Luis Suarez né Edinson Cavani voru í landsliðshóp Úrúgvæ sem lagði Bólivíu af velli í undankeppni HM fyrr í kvöld.

Varnarmennirnir Martin Caceres og Diego Godin gerðu mörk Úrúgvæ í leiknum og var Fernando Muslera, markvörður Úrúgvæ, magnaður á milli stanganna þar sem hann varði hvert skotið á fætur öðru.

Juan Cuadrado lék allan leikinn og Radamel Falcao kom af bekknum er Kólumbía lagði Perú af velli. David Ospina átti þá góðan leik á milli stanga Kólumbíu.

Teofilo Gutierrez, sóknarmaður Sporting, gerði fyrsta mark Kólumbíu undir lok fyrri hálfleiks og það var alltaf hætta á jöfnunarmarki þar til í blálokin þegar Edwin Cardona innsiglaði sigurinn í uppbótartíma.

Derlis Gonzalez gerði eina mark leiksins er Paragvæ lagði Venesúela af velli. Fyrstu umferð undankeppni HM lýkur í nótt þegar Brasilía heimsækir Síle og Argentína tekur á móti Ekvador.

Bólivía 0 - 2 Úrúgvæ
0-1 Martin Caceres ('10)
0-2 Diego Godin ('68)
Rautt spjald: Jair Torrico, Bólivía ('71)

Kólumbía 2 - 0 Perú
1-0 Teofilo Gutierrez ('36)
2-0 Edwin Cardona ('94)

Venesúela 0 - 1 Paragvæ
0-1 Derlis Gonzales ('84)
Athugasemdir
banner
banner