Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   þri 09. febrúar 2016 21:06
Alexander Freyr Tamimi
Martial: Ronaldo og Ronaldinho átrúnaðargoð mín
Anthony Marrtial hefur gert góða hluti í ensku úrvalsdeildinni.
Anthony Marrtial hefur gert góða hluti í ensku úrvalsdeildinni.
Mynd: Getty Images
Anthony Martial segir að eldri bróðir hans hafi ásamt brasilísku stórstjörnunum Ronaldo og Ronaldinho hvatt sig til að verða atvinnumaður í fótbolta.

Þessi tvítugi Frakki hefur gert góða hluti á sínu fyrsta tímabili hjá Manchester United eftir að hafa komið til félagsins frá Monaco fyrir 57,6 milljónir punda síðasta sumar. Bróðir hans Johan spilar fyrir Troyes í frönsku úrvalsdeildinni.

„Bróðir minn var sá fyrsti sem gaf mér þrá til að feta í fótspor hans," sagði Martial við Inside United.

„Það voru líka Brasilíumennirnir Ronaldinho og Ronaldo sem hvöttu mig til dáða í fótboltanum."
Athugasemdir
banner
banner