„Þetta var algjörlega magnað og maður er ekki búinn að taka þetta algjörlega inn," sagði Dagur B. Eggertsson borgarstjóri við Fótbolta.net í kvöld.
„Ég veit ekki hvar þetta endar eiginlega!" bætti Dagur við.
„Ég veit ekki hvar þetta endar eiginlega!" bætti Dagur við.
„Þeir eru svo heilsteyptir að ég held að mjög margir í samfélaginu geti tekið þá til mikillar fyrirmyndar."
Mikið er kallað eftir því að fá nýjan og stærri þjóðarleikvang.
„Borgin er búin að ræða þetta við KSÍ og ríkisstjórnina. Það er að vísu engin ríkisstjórn núna en ég á von á því að við setjumst niður og um leið og að kemur ríkisstjórn í landið þannig að við getum fundið út úr þessu verkefni og allir geti haft sóma að," sagði Dagur.
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir