Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 09. desember 2016 14:00
Magnús Már Einarsson
Klopp: Átta leikmenn gátu varist betur á undan Karius
Klopp og Karius.
Klopp og Karius.
Mynd: Getty Images
Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, hefur varið markvörðinn Loris Karius eftir sigurmark Bournemouth í leik liðanna um síðustu helgi.

Nathan Ake skoraði sigurmarkið eftir að Karius varði skot Steve Cook út í teiginn.

Klopp vill meina að aðrir leikmenn Liverpool hafi átt að gera betur áður en kom að mistökum Karius.

„Við skoðuðum leikinn og ég fann átta leikmenn sem hefðu getað varist betur í markinu áður en það kom að Loris," sagði Klopp á fréttamannafundi í dag.

„Hann gerði eins mistök og De Gea gerði nokkrum dögum áður. Jafnvel bestu markverðir í heim gera mistök. Þetta getur gerst."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner