2. umferð
Íslenska útgáfan af Innkastinu er á dagskrá eftir hverja umferð í Pepsi-deildinni í sumar. Einnig verður af og til litið niður í Inkasso-deildina líka.
Elvar Geir Magnússon og Magnús Már Einarsson fara yfir umferðina með fréttariturum og sérfræðingum.
Í dag eru allir leikir annarrar umferðar skoðaðir og er Gunnar Birgisson með Elvari og Magnúsi og farið er yfir 2. umferð. Auk þess er sérstaklega rætt um stóru fréttirnar, brottrekstur Arnars Grétarssonar frá Breiðabliki.
Í þættinum: Arnar Grétars rekinn, Fjölnismenn í stigasöfnun, Valsmenn í fljúgandi starti, Skagamenn gætu leitað enn meira í Skagahjartað, daprir útlendingar, ólíkindatólin í Víkingi R., Andri Rúnar með salt í sárin, óhræddir KA-menn, nauðsynlegur sigur KR, Hólmbert og Guðjón opna markareikninga, ÍBV er ekki hægt að dæma strax.
Beðist er velvirðingar á smá borhljóðum í bakgrunni þáttarins í dag en nágrannar okkar stóðu í miklum aðgerðum!
Sjá einnig:
Hlustaðu á Innkastið gegnum Podcast forrit
Hlustaðu á eldri þætti af Innkastinu
Athugasemdir