Steven Lennon skoraði markið sem skildi FH og Grindavík að í Pepsi-deildinni í kvöld.
„Ég held að hann hafi farið í rassinn á Emil og svo til mín. Ég tók hann síðan á lofti. Það var einfalt að klára þetta," sagði Lennon við Fótbolta.net eftir leik.
Lennon mætti í dag félaga sínum Sam Hewson en þeir hafa leikið saman bæði hjá FH og Fram.
„Sástu tæklinguna hans á mig?" sagði Lennon léttur í bragði. Þeir félagar fóru báðir í kröftuga tæklingu í fyrri hálfleik þar sem Lennon náði boltanum.
„Þetta var skemmtilegt. Um leið og boltinn endaði á milli okkar þá vildum við báðir ná honum og fórum nánast báðir í tveggja fóta tæklignu. Ég vann boltann og hann fótbraut mig næstum því. Þetta var skemmtilegt," sagði Lennon brosandi.

Lestu um leikinn: FH 1 - 0 Grindavík
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir