Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 14. febrúar 2016 12:51
Arnar Geir Halldórsson
Spánn: Sociedad rúllaði yfir Granada
Mikel Oyarzabal
Mikel Oyarzabal
Mynd: Getty Images
Real Sociedad 3 - 0 Granada CF
1-0 Mikel Oyarzabal ('21 )
2-0 Jonathas ('45 )
3-0 Mikel Oyarzabal ('60 )

Real Sociedad fékk Granada í heimsókn í fyrsta leik dagsins í spænska boltanum og unnu heimamenn nokkuð þægilegan sigur.

Ungstirnið Mikel Oyarzabal, fæddur 1997, kom Sociedad yfir á 21.mínútu og í uppbótartíma fyrri hálfleiks tvöfaldaði Jonathas forystuna fyrir Sociedad.

Hinn 18 ára gamli Oyarzabal gerði svo endanlega út um leikinn með öðru marki sínu og þriðja marki Sociedad eftir klukkutíma leik.

Sociedad þar með komið í 10.sæti spænsku úrvalsdeildarinnar með 30 stig en Granada hefur tíu stigum minna í næstneðsta sæti.

Athugasemdir
banner
banner
banner