Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
   þri 14. október 2014 18:41
Magnús Már Einarsson
Tómas Ingi: Danir eru klárlega betri en við
Tómas Ingi Tómasson.
Tómas Ingi Tómasson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
,,Við sofnuðum í nokkrar sekúndur og þeir ná að pota honum inn," sagði Tómas Ingi Tómasson aðstoðarþjálfari íslenska U21 árs landsliðsins um markið sem Danir skoruðu í 1-1 jafntefli liðanna í kvöld.

Danir fóru áfram á útivallarmarki þrátt fyrir að íslenska hafi spilað gríðarlega þéttan varnarleik

,,Sóknarleikurinn hefði getað verið betri. Varnarleikurinn er fínn og við vorum ánægðir með hann. Við héldum boltanum ekki nógu vel og hefðum þurft að gera betur sóknarlega til að vinna einvígið."

Sumir hafa gagnrýnt varnarsinnað leikkerfi U21 árs landsliðsins í einvíginu en Tómas Ingi blæs á það.

,,Þetta er eina leiðin fyrir okkur að vinna Danmörk. Þeir eru klárlega með betra lið en við. Við þurfum að bregðast við á móti liðum sem eru betri en við og verjast vel. Það mega allir gagnrýna það sem við erum að gera en þessi árangur okkar er frábær."

Engar skiptingar voru gerðar í fyrri leiknum og í kvöld komu ekki varamenn inn á fyrr en í viðbótartíma. ,,Okkur fannst planið ganga ágætlega. Við ætluðum að halda þessu fram í framlengingu og gera þá skiptingar og skipta um taktík. Því miður náum því ekki."

Tómas Ingi segir ekki ljóst hvort hann og Eyjólfur Sverrisson muni halda áfram með U21 árs landsliðið í næstu undankeppni.

,,Það er yfirleitt tekin ákvörðun um það á nýju ári. Við höldum áfram fram að áramótum og svo kemur í ljós hvort við höldum áfram."

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner