Svo gæti farið að miðjumaðurinn Jack Wilshere yfirgefi herbúðir Arsenal í sumar.
Samningur hans við Arsenal rennur út í sumar en eins og er þá bendir lítið til þess að hann mun framlengja, sérstaklega eftir færslu sem hann setti á Instagram í gær.
Samningur hans við Arsenal rennur út í sumar en eins og er þá bendir lítið til þess að hann mun framlengja, sérstaklega eftir færslu sem hann setti á Instagram í gær.
Í færslunni stóð: „Það kemur upp tími þar sem þú þarft að ákveða hvort þú viljir fletta yfir á næstu blaðsíðu eða loka bókinni."
Wilshere hefur verið orðaður við fjölda liða þar á meðal Ítalíumeistara Juventus ásamt West Ham og Crystal Palace. Wilshere sem er 26 ára var ekki valinn í HM hóp Englands.
Arsenal virðist vera að kaupa Lucas Torreira, miðjumann frá Sampdoria á Ítalíu.
Jack Wilshere on instagram 👀 pic.twitter.com/vOVMfsoa4k
— Osman (@OsmanZtheGooner) June 13, 2018
Athugasemdir