Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 16. júlí 2017 15:32
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Joe Hart í læknisskoðun hjá West Ham á mánudag
Joe Hart er á leið til West Ham
Joe Hart er á leið til West Ham
Mynd: Getty Images
Enski landsliðsmarkvörðurinn mun fara í læknisskoðun hjá West Ham á mánudag áður en gengið verður frá eins árs lánssamningi við félagið.

Frá komu Pep Guardiola til Manchester City í fyrra hefur Hart ekki verið inn í myndinni hjá hinum spænska og var hann sendur á lán til Torino á Ítalíu í fyrra þar sem hann var í heilt ár.

Hart spilaði 36 leiki fyrir Torino á síðasta tímabili.

Manchester City mun líklega borga hluta af launum Hart áfram en inn í lánssamningnum sem og West Ham fær forkaupsréttinn á markverðinum.

Samningur Hart hjá Manchester City rennur út árið 2019.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner