Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   fim 17. apríl 2014 12:40
Elvar Geir Magnússon
Lengjubikar - C-deild: Berserkir skoruðu þrettán mörk í gær
Kári Einarsson og félagar í Berserkjum skoruðu þrettán mörk í gær.
Kári Einarsson og félagar í Berserkjum skoruðu þrettán mörk í gær.
Mynd: Pétur Kjartan Kristinsson
Garðar Ingvar Geirsson gekk í raðir KB í vetur og skoraði fernu gegn Snæfelli.
Garðar Ingvar Geirsson gekk í raðir KB í vetur og skoraði fernu gegn Snæfelli.
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Riðlakeppni C-deildar Lengjubikarsins er að ljúka og þegar mörg lið búin að tryggja sæti sitt í úrslitakeppninni.

Berserkir unnu riðil-1 með miklum yfirburðum, unnu alla fimm leiki sína. Í gær vann liðið 13-0 sigur gegn Erninum. Elliði sem endaði í öðru sæti tapaði leik sínum.

Álftanes vann riðil-3 með fullt hús stiga. Grundarfjörður vann KH og endaði í öðru sæti.

Í riðli-4 hafnaði KFG í fyrsta sæti en Hvíti Riddarinn vann Mídas í vikunni og tryggði sér annað sæti.

Skínandi lauk keppni í riðli-5 á toppnum með fullt hús stiga.

Riðill-1:

Elliði 0 - 3 Kormákur/Hvöt
0-1 Ingibergur Kort Sigurðsson
0-2 Björgvin Karl Gunnarsson
0-3 Arnar Ingi Ingvarsson

Berserkir 13 - 0 Örninn
Mörk: Karel Sigurðsson 4, Kári Einarsson 3, Daníel Freyr Sigurðarson 3, Marteinn Briem 2, Óli Andri Hermannsson.

Riðill-3:

KH 2 - 3 Grundarfjörður
0-1 Kristinn Aron Hjartarson
1-1 Björn Ingi Árnason
2-1 Hreinn Þorvaldsson
2-2 Ragnar Smári Guðmundsson
2-3 Tomasz Weyer ('90)

KB 6 - 2 Snæfell
Mörk KB: Garðar Ingvar Geirsson 4, Andri Stefánsson 2.
Mörk Snæfells: Trausti Rafn Björnsson og Helgi Týr Tumason.

Riðill-4:

Mídas 1 - 2 Hvíti Riddarinn
0-1 Magnús Þór Þórhallsson
1-1 Guðjón Peterson
1-2 Aron Elfar Jónsson (víti '89)

Vatnaliljur 6 - 0 Augnablik
Mörk: Ragnar Valberg Sigurjónsson 2, Pétur Óskarsson 2, Atli Hjaltested 2.

Riðill-5:

Stokkseyri 1 - 4 Skínandi
1-0 Þórhallur Aron Másson
1-1 Logi Steinn Friðþjófsson
1-2 Sjálfsmark
1-3 Sigurður Bjarni Jónsson
1-4 Grétar Þór Kristinsson
Athugasemdir
banner
banner
banner