Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 17. september 2014 10:05
Magnús Már Einarsson
Rodgers: Balotelli er vanur því að skora
Mario Balotelli.
Mario Balotelli.
Mynd: Getty Images
Brendan Rodgers, stjóri Liverpool, vonar að mark Mario Balotelli gegn Ludogorets í Meistaradeildinni í gærkvöldi muni hjálpa ítalska framherjanum að komast í gang.

Balotelli skoraði þar sitt fyrsta mark síðan hann kom til Liverpool frá AC Milan í lok síðasta mánaðar.

,,Hann er vanur því að skora. Hann hafði þegar nefnt það eftir tvo leiki að hann væri ekki ennþá búinn að skora," sagði Rodgers.

,,Ég tel að hann þurfi að vera meira í vítateignum. Hann tekur þátt í uppspilinu og dregur sig aftar þá. Ég sagði við hann í hálfleik: 'þegar boltinn er úti á kanti vertu þá nær markinu en vítapunkturinn."

,,Hann vill mikið draga sig til baka í vítateignum til að fá sendingu út í teiginn. Hann er hávaxinn og frábær í loftinu."

,,Þegar fyrirgjöfin kom inn á teiginn þá sýndi hann mikinn styrk og hann kláraði færið frábærlega. Þetta var frábær tækni þegar hann skoraði með utanfótar skoti. Þetta mun gefa honum mikið sjálfstraust."

,,Mér fannst hann líka leggja mjög hart að sér og hann var duglegur að pressa. Hann er ennþá að aðlagast og komast í form því að hann lenti eftir á þegar undirbúningstímabilið var í gangi."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner