Liverpool er að valta yfir Maribor frá Slóveníu í Meistaradeildinni.
Þegar þessi frétt er skrifuð er staðan 3-0 fyrir Liverpool og yfirburðirnir eru algjörir. Allur sóknarkór Liverpool, Roberto Firmino, Philippe Coutinho og Mohamed Salah, hafa skorað í leiknum.
Þegar þessi frétt er skrifuð er staðan 3-0 fyrir Liverpool og yfirburðirnir eru algjörir. Allur sóknarkór Liverpool, Roberto Firmino, Philippe Coutinho og Mohamed Salah, hafa skorað í leiknum.
Í sumar hafði Maribor betur gegn FH í forkeppni Meistaradeildarinnar, en þeir unnu báða leikina 1-0, samanlagt 2-0.
Í Meistaradeildarmessunni í kvöld fara Gummi Ben, Hjörvar Hafliða og Jóhannes Karl yfir málin á meðan leikjunum stendur, en þeir hafa verið hrifnir af frammistöðu Liverpool hingað til í kvöld.
„Af hverju gat FH ekki spilað svona gegn Maribor," sagði Guðmundur Benediktsson hress, eins og hann er alltaf.
Þá sagði Hjörvar: „Ég spái þessum leik 7-0," en Gummi tók hann á orðinu og sagði: „Ég spái þá 6-0."
Hægt er að fylgjast með stöðu mála á úrslitaþjónustu á forsíðu.
Athugasemdir