Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
   fim 17. nóvember 2016 21:25
Jóhann Ingi Hafþórsson
Egilshöll
Ágúst Eðvald: Þessir gæjar eru betri en þeir í efstu deild
Ágúst Eðvald spilaði vel í dag.
Ágúst Eðvald spilaði vel í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
„Þeir voru hrikalega góðir og þetta var ógeðslega erfitt," var það fyrsta sem Ágúst Eðvald Hlynsson fyrirliði U-17 ára landsliðsins sagði eftir 7-2 tap gegn Þjóðverjum í vináttuleik í Egilshöllinni í kvöld.

Staðan var 3-0 fyrir Þjóðverja eftir korters leik en Ísland minnkaði muninn í 3-2. Það dugði þó skammt þar sem þýska liðið var töluvert sterkara í seinni hálfleik.

Lestu um leikinn: Ísland 2 -  7 Þýskaland

„Við lendum 3-0 undir snemma en komum til baka í 3-2 og fáum smá trú en svo misstum við þetta aftur niður, þetta var mjög erfitt."

Ágúst var besti maður Íslands í leiknum og skoraði hann fyrra mark þeirra með skoti utan teigs. Markmaður Þjóðverja var í boltanum en inn fór hann.

„Ég fékk hann fyrir utan teig, touchaði hann og lét bara vaða á markið, ég bjóst ekki við því að ég myndi skora en hann lak inn."

Hann segir U-17 ára landslið Þjóðverja vera betra en liðin í Pepis-deildinni en Ágúst hefur reynslu úr efstu deild, þrátt fyrir að vera aðeins 16 ára gamall.

„Þetta var svipað en mér finnst þessir gæjar betri en þeir sem eru í efstu deild. Þeir eru líkamlega sterkari og fljótari en við," sagði Ágúst.

Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner