Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 17. nóvember 2017 17:30
Magnús Már Einarsson
Marco Silva einbeittur á Watford þrátt fyrir áhuga Everton
Mynd: Getty Images
Marco Silva, stjóri Watford, segist áfram vera 100% einbeittur á starf sitt hjá félaginu.

Everton gerði tilraunir í þessari viku til að fá að ræða við Silva um stjórastarfið hjá sér.

Watford neitaði beiðnum Everton og Silva segist halda áfram að einbeita sér að Watford.

„Ég hef fundið fyrir því frá fyrsta degi að ég er skuldbundinn verkefninu hér," sagði Silva.

„Ég vinn hjá félaginu á hverjum degi og ég hef engar efasemdir."

„Ekkert mun breytast því að ég allir hjá félaginu vita tryggð mína. Ég mun vinna á hverjum degi og leggja mig 100% fram fyrir þetta félag."


Watford mætir West Ham í ensku úrvalsdeildinni á sunnudaginn.
Athugasemdir
banner
banner
banner