Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 17. desember 2014 07:30
Brynjar Ingi Erluson
Fabregas: Viljum vinna allt sem er í boði
Mynd: Getty Images
Cesc Fabregas, leikmaður Chelsea á Englandi, var ánægður með 1-3 sigur liðsins á Derby County í enska deildabikarnum í gær.

Fabregas lagði upp markið sem Eden Hazard skoraði í gær en hann lék afar vel í gær í 8-liða úrslitum bikarsins.

,,Svona leikir eru alltaf erfiðir. Þetta var líklega stærsti leikur Derby á tímabilinu og þess vegna þurftum við að vera tilbúnir í þetta," sagði Fabregas.

,,Ég er að njóta þess að spila í þessu liði. Við erum með öflugan hóp og við viljum vinna allt sem er í boði," sagði hann að lokum.
Athugasemdir
banner
banner