Alexis Sanchez, leikmaður Barcelona á Spáni, neitaði að taka við silfurpeningnum eftir 2-1 tap liðsins gegn Real Madrid í úrslitum spænska konungsbikarsins á dögunum.
Sanchez var afar ósáttur með Tata Martino, þjálfara Barcelona en búist var við því að hann myndi byrja leikinn gegn Madrídingum.
Tata ákvað að velja Fabregas ásamt Messi og Neymar í leiknum á toppnum en Sanchez fékk einungis þrjár mínútur til að spreyta sig.
Sílemaðurinn neitaði að taka við silfurpeningnum eftir leikinn og hélt strax í búningsklefann en eins og myndbandið hér fyrir neðan sýnir þá er hann eini leikmaður Barcelona sem mætir ekki í afhendingu peningsins.
Þá greindu spænskir miðlar frá því í gær að Sanchez hafi rifist við Martino og kallað hann heigul en þar sem Neymar verður að öllum líkindum frá út tímabilið þá getur Martino ekki annað en notað Sanchez í framlínunni.
Athugasemdir