Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 18. júlí 2017 21:01
Dagur Lárusson
Conte skrifar undir nýjan samning
Antonio Conte
Antonio Conte
Mynd: Getty Images
Sky Sports greindi frá því rétt í þessu að Antonio Conte, stjóri Chelsea, sé búinn að skrifa undir nýjan tveggja ár samning við félagið.

Mikið hefur verið rætt um framtíð Conte hjá félaginu en hann hefur verið mikið orðaður við endurkomu til Ítalíu en það virðist ekki vera raunin miðaða við nýjustu fréttir.

Þessi nýji samningur er þó ekki framlenging heldur aðeins betri kjör eftir að hafa unnið deildina á sínu fyrsta tímabili.

„Ég er svo ánægður að vera búinn að skrifa undir nýjan samning. Við lögðum svo hart að okkur á síðasta tímabili og uppskárum eftir því, en núna verðum við að leggja ennþá harðar að okkur til þess að halda okkur á toppnum," sagði Conte eftir að hafa skrifað undir nýja samninginn.
Athugasemdir
banner
banner