Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   þri 18. júlí 2017 11:45
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sjáðu mörkin: Lukaku á skotskónum í sigri Man Utd
Mynd: Getty Images
Real Salt Lake 1 - 2 Manchester United
1-0 Luis Silva ('24)
1-1 Henrik Mkhitaryan ('29)
1-2 Romelu Lukaku (38)
Rautt spjald: Antonio Valencia ('68)

Romelu Lukaku opnaði markareikning sinn með Manchester United í 2-1 sigri á Real Salt Lake í æfingaleik í Utah í nótt.

Lukaku gekk í raðir United í síðustu viku fyrir 75 milljónir punda.

Hiti var í leiknum en Antonio Valencia fékk rauða spjaldið fyrir tæklingu í síðari hálfleik auk þess sem Juan Mata fór meiddur af velli.

Lukaku skoraði sigurmarkið á 38. mínútu eftir að United hafði lent undir fyrr í leiknum. Fyrra mark United gerði Henrikh Mkhitaryan, en Armeninn lagði upp sigurmarkið fyrir Lukaku.

Hér að neðan má sjá mörkin úr leiknum.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner