Elísabet Guðmundsdóttir er búin að skrifa undir tveggja ára samning við Fjölni sem rennur út eftir sumarið 2019.
Elísabet spilaði 6 leiki á láni hjá Fjölni á síðari hluta síðasta sumars og hefur ákveðið að skipta um félag í kjölfarið.
Elísabet spilaði 6 leiki á láni hjá Fjölni á síðari hluta síðasta sumars og hefur ákveðið að skipta um félag í kjölfarið.
Elísabet er fædd 1993 og hefur leikið 80 meistaraflokksleiki fyrir KR og FH. Hún spilar á miðjunni en er fjölhæf og getur leyst ýmsar stöður af hólmi.
„Knattspyrnudeild Fjölnis býður Elísabetu hjartanlega velkomna í búninginn gula og bláa," stendur meðal annars í tilkynningu frá Fjölni.
Elísabet hjálpaði Fjölni að komast upp úr 2. deildinni á síðasta tímabili. Áhugavert verður að fylgjast með liðinu í 1. deild.
Athugasemdir