Luis Suarez og Gerard Pique, liðsfélagar hjá Barcelona voru eitthvað ósáttir hvor við annan á æfingu liðsins fyrir leikinn gegn Manchester City sem fram fór í kvöld.
Hér að neðan má sjá myndir af leikmönnunum þar sem þeir rífast en virðast að lokum skilja nokkuð sáttir en ekki hefur komið fram, hvers vegna þeir rifust.
Barcelona vann leikinn 4-0 svo þeir eru væntanlega sáttir í kvöld.
Athugasemdir