Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 20. apríl 2014 15:58
Daníel Freyr Jónsson
Mynd: Maðurinn með ljáinn fyrir aftan Moyes
Mynd: Twitter
David Moyes snéri aftur á Goodison Park í dag í fyrsta sinn síðan hann tók við Manchester United síðasta sumar.

Hann fékk misgóðar móttökur frá stuðningsmönnum Everton, en nokkuð var um að púað væri á Skotann er hann gekk inn á völlinn.

Einn gekk þó lengra en flestir og klæddi sig sérstaklega upp í tilefni endurkomu Moyes, auk þess sem hann hafði ljá með sér í stúkunni.

Þennann flotta klæðaburð má sjá á meðfylgjandi mynd, en eftir að maðurinn lét vel í sér heyra og beindi ljánum að Moyes var hann fjarlægður af öryggisvörðum á vellinum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner