Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
   þri 20. júní 2017 21:52
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Róbert: Gerum stóran rauðan kross á fyrri umferðina
Það hefur lítið gengið upp hjá Grindavík í undanförnum leikjum
Það hefur lítið gengið upp hjá Grindavík í undanförnum leikjum
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski
Róbert Haraldsson, þjálfari Grindavíkur var að vonum ósáttur við 5-0 tap gegn Breiðablik en hann tekur þó jákvæða punkta úr leik liðsins í kvöld.

„Ég er mjög sáttur með fyrstu fjörtíu hjá okkur. Við lögðum upp með að liggja aðeins til baka þó við hefðum vindinn í okkur og sækja svo hratt á Blikana. Þetta hefur verið svolítið sagan hjá okkur, við erum ekki alveg nógu fókuseraðar rétt fyrir hlé og fáum á okkur tvö mörk sem klára leikinn," sagði Róbert.

Rilany Da Silva, annar brasilísku leikmanna Grindavíkur fór útaf vegna meiðsla í kvöld.

„Þetta er í náranum held ég. Við höfum verið í skakkaföllum núna og það vantaði einar fimm í dag en það kemur maður í manns stað. Ég sagði við stelpurnar að við gerum bara einn stóran rauðan kross á fyrri umferðina núna. Þetta er búið að vera mjög erfitt hjá okkur. Það er bara nýtt mót framundan hjá okkur."

Thaisa Moreno, hinn brasilíski leikmaður Grindavíkur hefur verið lengi frá vegna meiðsla og er ekki von á henni í næstu leikjum.

„Hún kemur til baka í ágúst. Það voru smá læknamistök og rangar upplýsingar frá læknum og hún fór að æfa á fullu, á meiðslum sem hún átti ekki að stíga í fótinn. Það seinkaði henni um mánuð."
Athugasemdir
banner
banner
banner