Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
   mið 20. ágúst 2014 20:15
Matthías Freyr Matthíasson
Kristján Guðmunds: Ótrúlegar ákvarðanatökur
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
,,Við spiluðum frekar illa og gerðum ansi margar vitleysur, ótrúlegar ákvarðanatökur og margar ótrúlega slakar sendingar. Þetta var mjög dapurt," sagði Kristján Guðmundsson þjálfari Keflavíkur eftir 0- 2 tap gegn FH í Kaplakrikanum í kvöld.

Lestu um leikinn: FH 2 -  0 Keflavík

,,Það er erfitt að finna eina skýringu á þessu núna en við vorum að spila á móti góðu liði. Það er ekkert hægt að taka að frá þeim. En erfitt að setja fingurinn á það akkúrat núna."

Keflavík spilaði bikarúrslitaleik sem þeir töpuðu gegn KR á laugardaginn, hafði það áhrif?

,,Bikarúrslitaleikurinn hafði einhver áhrif en það var orka í okkur. Við vorum ekkert að leggjast til baka og vorum að hlaupa. við þrýstum á þá en það vantaði eitthvað upp á einbeitinguna. Tækniatriðin voru slök en orkan var til staðar."

,,Við vildum þrýsta á þá og koma í veg fyrir að þeir næðu miklum rhythma í sínum leik og halda áfram að vera með hröðu sóknirnar okkar. Það gekk bara afskaplega illa upp og sérstaklega því sendingarnar okkar rötuðu ekki á samherja. Þegar við áttum færi á að sækja vorum við of mikið að rekja boltann til baka. Þeir leikmenn sem hafa getu til að rekja boltann eða sækja á markið gerðu það ekki. Við tókum tæknilega of margar rangar ákvarðanir."

Athugasemdir
banner
banner
banner